Sykurblóm og annað kökuskraut
Sykurblóm og annað kökuskraut
Ég er sjálfmenntuð í gerð sykurblóma. Á þeim tíma sem ég byrjaði að þróa mig áfram í sykurblómagerð var lítið af ætu skrauti á markaði. Ég keypti mér DVD disk frá Wilton kökufyrirtækinu og lærði grunninn í blómasprautun. Mesti lærdómurinn fólst þó í æfingunni og ég þróaði alls kyns fígúrur og skraut.
Seldi þó alltaf langmest af blómunum. Hægt var að panta hvaða liti sem var.
Ég seldi sykurblóm og annað kökuskraut í 10 ár frá árinu 2008. Mest var að gera í kringum fermingar. Ég hélt úti síðunni www.kokuskraut.net og pantaði fólk í gegnum tölvupóst. Ég sendi víða um land.
Ótrúlega sagan er sú að fyrsta salan mín og pöntun var sending til Singapore. Ég tók við greiðslu í gegnum PayPal sem ég lærði á í hvelli til að geta rukkað.
Mér þótti sykurblómavinnan alltaf gríðarlega skemmtileg og sölubrasið og þjónustan í kringum það.
Geri enn sykurblóm fyrir fjölskylduna og ef ég er beðin og hef tíma.